Smá aukapælingar (aðallega fyrir frændsystkinin)
Ég var að tala við hana Kristínu frænku rétt í þessu og hún sagði mér að Íris væri væntanleg til landsins. Þá datt mér í hug að það gæti verið gaman að hafa aftur frændsystkina hitting í sumar meðan allir eru á landinu. Þetta er í raun síðasti séns í langan tíma þar sem Íris og Jóhann búa úti, og Eva, Ólöf og Kristín ætla að flýja klakann líka.
Þeir sem hafa áhuga, endilega látið mig vita. Það væri geggjað gaman að reyna að koma öllum frændsystkinunum saman og gera eitthvað gaman saman.

21 Comments:
ég er til!
Jamms ég er líka til :-)
Þá er bara um að gera að finna tíma þar sem allir eru lausir.
Hvenær getið þið komið, og hvaða hugmyndir hafið þið um hvað við getum gert (og hvar)
Ég er fáranlega til í þetta!!! Hvernig væri að hafa þetta annað hvort helgina fyrir eða eftir Verslunarmannahelgina?? Er það ekki þrusugóð samloka?? (ég er ekkert búin að sofa)
Ég er líka til held ég, er annars í endalausum húsbyggingum þessa dagana. Kristín er reyndar að gleyma því að við erum alltaf í fjölskylduhitting helgina eftir verslunarmannahelgi.
Já ég er laus hvorum megin við sko.. og líka versló ef út í það er farið.. spurning með að leyfa írisi kannski að finna þær dagsetningar sem hún kemst.. eða þá bara virkur dagur, pizza og spil eða eitthvað.. lið í trivial jafnvel, en samt alltaf gaman að fá sér í tána með sko ;-)
Hvaða ættarmót er það sem er ALLTAF helgina eftir verslunarmannahelgina spyr ég nú bara! Er það svona svipað og ættarmótið sem er ALLTAF fyrstu helgina í júlí, þótt það hafði bara verið það einu sinni áður og er ekki þá lengur????? Maður bara spyr sig hversu oft hlutirnir þurfa að gerast til þess að þetta ALLTAF virkar.... einu sinni?? Því þá er ég ALLTAF að svara með svona löngum kommentum.... ;)
btw, hver er anonymus?
Alltaf er þegar búið er að ákveða það einu sinni ... og hana nú!
Endilega allir að koma með einhverjar hugmyndir, og svo getum við valið eina (þeir sem lesa ekki bloggið mitt fá þá bara ekkert að vera með í ákvörðuninni. það ætti að kenna þeim að lesa bloggið mitt. hehe)
Ég er til
Hvar eigum við að hittast? Eigum við að hittast í heimahúsi eða einhversstaðar annarsstaðar?
Og ef við hittumst í heimahúsi, hver er til í að bjóða heim til sín?
sko, íris er audda að vinna allar helgar þar til hún fer, veit ekki með jóhann, en ef við viljum stíla inn á að sem flestir bara mæti og spjalla og kannski spila smá, þeir sem vilja og eru í fríi geta þá fengið sér bjór með þá er það bara í besta lagi, ég held að það væri jafnvel auðveldara en að reyna að stíla inn á helgi.. hvað finnst ykkur?
Hvaða dagur mundi henta ykkur þá best? Ég persónulega er laus öll kvöld.
ég er líka laus öll kvöld þannig að mér er sama...
Til er ég sérstaklega eftir þessa viku því þá er ég byrjuð sumarfríi ...jeii
Ég set fram seinustu helgina í Júlí, annað hvort föstudag og laugardag, og ég skal spurja mömmu (haha) hvort ég megi halda partý ;)
Obbosí júlí með stórum, tisk tisk tisk.... ætli ég sé strax orðinn full......af spenningi
þá kemst íris audda ekki.. ef það er um helgi... hmmm
Hún hlýtur að komast þangað til hún fer að vinna. Og það eru líka meiri líkur á að fleiri komist um helgi en í miðri viku.
hún byrjar að vinna á laugardag, og ef þetta er grill og byrjar snemma þá kemst hún alveg því hún fer ekki að vinna fyrr en 10
Sendu inn athugasemd
<< Home