miðvikudagur, maí 17, 2006

Jæja, þá er maður komin aftur upp á yfirborðið eftir prófin. Vona að þið hafið ekki saknað mín of mikið....
Ég ætla nú ekki að hafa þetta langt því ég er að stelast í vinnunni.... (reyndar er yfirmaðurinn minn ekki mjög strangur... hehe)

Lítið er nú að frétta nema það að ég er búin að fá eina einkunn, 8,5. Það er nú bara alveg ágætt þó ég hafi stefnt á níu. En maður verður bara að vera ánægður með þetta, þetta er nú ekki alslæmt.

Eurovision er á morgun, það verður gaman. Svo er bara að bíða og sjá hvort Silvía fá að vera í aðalkeppninni. Spurning hvort áhorfendur og keppnishaldarar leyfi henni það.

Bless bless.....


Rugluð ég, ég gleymdi aðalfréttinni!!!
Hún er sú að ég verð ein heima næstu eina og hálfa vikuna sirka (partý hjá mér hehe). Kallinn er nefnilega farinn til útlanda, fór í hádeginu. Hann er farinn til Færeyja. Þangað hef ég aldrei verið svo fræg að fara, þó að ég þekki nú helling af Færeyingum (örugglega helminginn eða eitthvað!). Þessvegna er ég soldið stressuð yfir þessu, ég veit nefnilega hvernig Færeyingar drekka (því ég hef drukkið með þeim, endar yfirleitt í einhverju rugli). Vona bara að hann Gunni minn láti Ákavítið í friði....

Nei svona í alvöru þá vona ég að hann skemmti sér vel, þó að hann sé að fara til að vinna.

Bless bless (aftur).

1 Comments:

Anonymous Anna said...

Hvaða, hvaða - Færeyingar eru besta fólk! ;)
Ég efast ekki um að Gunni eigi eftir að skemmta sér vel í útlandinu (þó að Færeyjar séu kannski ekki mikil útlönd :)

11:53 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home