Ég vildi bara benda fólki á að ég sá á B2 að það er kominn undiskrifat listi til stuðnings Silvíu, ef einhver hefur áhuga....
Annars hef ég voða lítið að segja eins og fyrri daginn. Reyndar dreymdi mig voðalega illa í nótt. Til að gera langa sögu stutta þá var ég komin á kaf í pólitík. Já, þeir sem þekkja mig vita að þetta hefur verið algjör martröð fyrir mig. Ég hélt einhverja svaka ræðu í hápunkti draumsins og var mjög reið við andstæðinga mína sem voru krimmar sem reyndu að láta mig líta illa út. Man ekki alveg hvað það var sem þeir gerðu, en það var eitthvað mjög slæmt og það var það sem fékk mig til að skrá mig í flokkinn sem var á móti þeim....
Ætla að fara og opna bækurnar..... Lofa engu meiru en það!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home