Mánudagur 16. jan.
Jæja þá er skólinn að byrja aftur á morgun. Ég er bara hálf fegin, það er ágætt að fá smá reglu á dagana aftur, en ég er soldið búin að snúa sólahringnum við. Í gær áttum við Gunni árs afmæli. Héldum reyndar ekkert upp á það í gær, en á laugardaginn fórum við upp í bústað og elduðum góðan mat. Fórum svo beint heim eftir matinn því að þegar við vorum að elda föttuðum við að það var ekkert vatn, hvorki heitt né kalt, í húsinu... Í gær átti Hannes afmæli og við kíktum aðeins á hann og Ólöfu eftir kvöldmat. Það var bara voða fínt. Þau buðu okkur í afganga og svo spiluðum við til að verða tólf.
Svo er það helst í fréttum að ég var að fá síðustu einkunina í hús. Hún var bara í samræmi við hinar þannig að ég var mjög ánægð með það. Þetta var nefnilega sú einkunn sem ég var mest hrædd um að yrði hræðileg.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home