föstudagur, janúar 27, 2006

Úff klukkan er rúmlaga tvö og ég er ekki enn farin að sofa. Ég er nefnilega EKKERT þreytt þannig að ég ákvað að nýta tímann og læra aðeins. Er nefnilega ekki búin að læra neitt í dag. Ástæðan fyrir því að ég er ekki þreytt núna er sú að ég svaf yfir mig í morgun. Ég lá nefnilega andvaka í gærnótt. Ég fór til tannlæknis á miðvikudaginn af því að ég er búin að vera með tannpínu. Hann skoðaði mig vel og vandlega og sagði svo að þessi verkur sem ég var að finna var ekki vegna skemmdar. Góðar fréttir mundi maður halda, en nei. Ég er komin langleiðina með að skemma í mér tennurnar vegna þess að ég eyði öllum nóttum í gníst. Þannig að núna á ég að fara að sofa með góm (eða tannskinnu eins og tannsi vill alla það, en mér finnst það ljótt orð). Ég á gamlan góm sem hann sagði mér að prófa og ég gerði það. Lá semsagt andvaka í þrjá tíma og pirraði mig á þessum óþægilega gómi. Ákvað samt að þrauka og bókstalfega PÍNDI sjálfa mig til að vera með hann. Að lokum sofnaði ég og þegar ég vaknaði hvað haldiði að hafi ekki verið það fyrsta sem ég tók eftir? Hvorugur gómurinn var uppi í mér!!!!!!! Ég hafði sem sagt pínt sjálfa mig í þrjá tíma, og svo hrækt þeim út úr mér um leið og ég sofnaði!!! Ég var svo ringluð þegar ég vaknaði að ég spurði Gunna hvar þeir væru (eins og að hann hefði eitthvað meiri hugmynd en ég....). En Gunni kallinn fann þá að lokum fyrir mig. Annar var undir koddanum mínum, og hinn undir rassinum á Gunna!! Hvernig þeir komust þangað vil ég ekki vita. Ég hugsa að ég þrífi gómana áður en ég set þá upp í mig á eftir, bara svona til vonar og vara......

4 Comments:

Blogger Kristín hedgelator said...

HAHAHAAH, þú hefur verið að bíta í rassinn á Gunna í svefni! HAHAHAHAHAHAHAHHAHAHA Yndislegt :)

2:20 AM  
Blogger Erla said...

já ég verð að viðurkenna Helga mín að þrátt fyrir að ég finni mikið til mér tönnunum þínum þá er þetta ein fyndnasta bloggfrásögn sem ég hef lesið...

8:42 PM  
Anonymous Helga said...

Óhætt að segja að ég sé seinheppin...

12:29 AM  
Anonymous Nafnlaus said...

blogga meir blogga meir :)

2:05 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home