Jæja, nú er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, og þá er ég ekki að tala um verkefna og skýrsluskil, því enginn nennir að lesa um svoleiðis vesen.
Byrjum á byrjuninni:
Þann 11. mars síðast liðinn átti litli bróðir minn afmæli og varð 23 ára gamall. Hann var búinn að halda því fram að hann ætlaði ekki að halda upp á afmælið og að hann vildi ekki fá pakka, en eins og venjulega var ekki hlustað á svoleiðis vitleisu. Ég ákvað að bjóða Ívari, Önnu, Viktoríu, Pabba og Mömmu í mat, og auðvitað var uppáhalds maturinn hans Ívars eldaður, lasagne og ostakaka í eftirrétt. Allt mjög velheppnað það.
Í öðru lagi skellti ég mér (með familíunni audda) á fótboltaleik í London. Það var bara ágætis skemmtun, Fulham vann Chelsea (hvernig skrifar maður?) eitt núll. Það þýðir ekkert að spurja mig hver skoraði, því ég hef ekki hugmynd um það. Verð nú samt að viðurkenna að útsýnið var ágætt, sérstaklega fyrir leikinn þegar allt chelsea liðið var að hita upp og beyja sig beint fyrir framan mann. Ekki ljótir rassar það.....
Svo var auðvitað verslað einhvern helling, en það fylgir......
Svo er það helst í fréttum að núna á laugardaginn verður gerð önnur tilraun til að fara á Typpatal með Audda, en síðast þegar við áttum pantaða miða féll sýningin niður. Við skulum vona að hann Auddi greyið verði hress um helgina. Ef einhver hittir hann í dag eða á morgun, þá er sá hinn sami vinsamlegast beðinn um að biðja Audda um að ganga hægt um gleðinnar dyr á föstudaginn.
Takk fyrir mig og bless.